Í október lærðum við mikið um frumur, við lærðum að það eru til margar gerðir frumna t.d. blóðfruma, taugafruma o.fl.
Frumum er hægt að skipta í tvo flokka plöntufrumur og dýrafrumur en þessar frumur eru báðar heilkjörnungar. Plöntufrumur eru grænar frumur, þær hafa frumuvegg, frumuhimnu, grænukorn með blaðgrænu, frumukjarna, stóra safabólu, umfrymi, hvatbera, golgikerfi, prótínverksmiðjur og litningar. Dýrafrumur eru næstum alveg eins nema að dýrafrumur hafa ekki grænukorn, frumuvegg og ekki stóra safabólu. Ég talaði áðan um að dýrafrumur og plöntufrumur eru bæði heilkjörnungar, heilkjörnungar eru frumur sem hafa kjarna og öll líffæri hafa sinn stað. Dreifkjörnungar er andstæðan, dreifkjörnungar hafa ekki kjarna og í þeim er allt bara fljótandi út um allt. Í tímunum þá skoðuðum við einu sinni sáðfrumur í smásjá. Við teiknuðum líka frumur og lærðum mörg hugtök um frumur. Í viku 2 í október þá lærðum við á spjaldtölvur og töluðum mikið um fótsporið sem maður lætur eftir sig á netinu sem var mjög skemmtilegt. En ég held að ég sé bara búin núna. 1. Ég sá sæðisfrumu úr nauti í smásjá þær voru flestar hreifingarlausar en nokkrar hreifðu sig við og við.
2. Ég hafði bók með öllum hugtökum af dýra og plöntufrumum og ég teiknaði dýrafrumuna. 3. |
Details
AuthorWrite something about yourself. No need to be fancy, just an overview. Archives
November 2018
Categories |